Jóhanna Lúxuspía
Þjóðfræði
Fyrrverandi Argentínufarar
15.08.2006 19:22:01 / johanna84

útlönd

Ég er komin til landsins aftur. Ferðin var mjög skemmtileg, ég nenni eignlega ekki að skrifa ferðasögu, áhugasamir geta kíkt á síðuna hans Óla, hann kemur að öllum líkindum með góða lýsingu innan skamms:D Hann er líka búinn að bjóða mér blogg á öðru svæði þannig að ég flyt að öllum líkindum bráðum... jíbbí 8)

En svona til að segja eitthvað frá þá heimsóttum við nokkrar H&M verslanir í Svíþjóð, skoðuðum mörg söfn t.d. Vasa safnið, Skansen, Þjóðminjasafnið í Stokkhólmi og fórum í tívolí. Vorum með sjóriðu í viku af því að gista á báti í káetum þar sem ekki var hægt að hreyfa sig nema í samráði við aðra í herberginu.

Á Gotlandi röltum við mikið um. Vorum í búningum og sáum mjög mikið af fólki í búningum. Það var mikill stemming í því að fara á skemmtistað þar sem það var miðalda dress kód og það var leitað á manni eftir vopnum áður en að maður fór inn. Inni var svo miðaldahljómsveit að spila fyrir alla uppábúnu gestina.

 Gistiaðstaðan var aðeins betri en ég var í miðkoju (koja á þrem hæðum) og það þurfti lagni til að komast úr henni og í.

Við héldum nokkur partý á veröndinni og sungum íslensk lög og að sjálfsögðu fundum við íslendinga. Stráka sem hafa verið búsettir í Svíþjóð meirihlutann af ævinni.

Ferðin heim var löng. Við lögðum af stað um nótt frá Gotlandi og eftir þriggja tíma ferju og tvær rútuferðir komumst við í flugstöðina. Fluginu okkar var seinkað og átti að fara klukkan 18.00.

Meiri upplýsingar fengum við ekki. Iceland Express var ekki að gera sig hvað varðaði upplýsingar. Allir fengu mismunandi upplýsingar, meira segja þegar hringt var til Íslands og beðið um upplýsingar frá skrifstofunni.

Við fundum okkur gistingu á flugvellinum en þurftum alltaf að vera að rölta yfir í annan hluta flugstöðvarinnar til að reyna að fá upplýsingar. Þær létu á sér standa.

Svo rétt fyrir hálf sex kom einhver á hlaupum og sagði að við þyrftum að hlaupa og tékka inn því að flugið ætti að fara klukkan sex.

Við hlupum og tékkuðum okkur inn en svo var engin vél og engar upplýsingar. Það kom svo ekki vel fyrr en seint og síðar meir, held að við höfum verið komin í loftið rúmlega níu!!!!

Ekki góð þjónusta þetta!

Eftir allt þetta ferðalag var samt mjög gott að komast heim.

Og nú ætla ég að drífa mig að fá mér að borða...

svanga-Jóhanna

Anna Ran skrifaði
Hallo, velkomin heim. Heilsur fra Bulgariu. Forstu til Huddinge? Hlakka til ad sja tig. Verduru ad vinna a fim?
Jóhanna skrifaði
verð ekki að vinna... skemmtið ykkur vel :)
kolla skrifaði
Velkomin í siðmenninguna ;)
helgak skrifaði
hellú ... gott að fá þig aftur ... verð að heyra í þér ... hringi á eftir ;)
Anna Ran skrifaði
Langar svo ad hitta tig. Kemuru um helgina?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.