Jæja, nú er annað ferðalag búið og
ég búin að afreka það að fara á 6 söfn á viku. Geri aðrir
betur J
Ég fór í Bjarnafjörð með mömmu, Söru
og Elsu og lækkaði meðalaldur ferðafélaga umtalsvert.
Á leiðinni þangað stoppuðum við á
Galdrasýninguni á Hólmavík, hún var flott en ég bjóst samt við
einhverju meiru. Á sýningunni keypti ég mér bol með Ægishjálmi og
annan handa mínum heittelskaða (á maður ekki alltaf að koma með
gjör úr ferðalögum?).
Eftir ferðina á safnið fórum við að
húsinu sem við gistum í. Það var stórt og flott timburhús sem leit
út eins og það ætti heima í sögu eftir Astrid Lindgren. Það sem var
merkilegast við það var að húsráðendur höfðu flutt það af
austfjörðum, tekið það í sundur þar og sett það svo aftur saman
þarna. Það eru ekki margir sem hefðu nennt því. Mér fannst það líka
fyndið þegar ég komst að því að heimasætan á bænum sem við vorum á
er hún Hrönn sem er líka í þjóðfræði. Lítill heimur!
Þar sem að það var komið kvöld þegar
við komum þá var lítið annað gert þann daginn. Eldaður góður matur
og drukkið svolítið vín en svo voru allir orðnir þreyttir og ákváðu
að fara að sofa.
Daginn eftir var þoka og við vorum
vissar um að hún myndi fara um hádegi en vorum að sjálfsögðu ekki
það heppnar. Við fórum rúnt þarna um, sáum endalausan rekavið þarna
í fjörunni, algjör sóun á við þarna!
Við hættum okkur á einhvern svaka veg
sem er á leið til Djúpuvíkur (ef að einhver er einhverju nær) þar
voru fullt af vörubílum að þjappa veginn og mikið af gráhærðum
mönnum á rauðum pallbílum, við sáum reyndar ekki hvort að þeir voru
einhver mannsefni. Mamma kvartaði mikið yfir að hún vildi ekki
keyra í svona drullu en hún hafði víst ekkert val því að það var
ekki hægt að snúa við.
Eftir hrakningarnar þar fórum við
aftur tilbaka í Bjarnafjörð og fórum í Kot kuklarans þar. Það var
mjög flott, þetta er gert eins og gamalt kot, fyrst föttuðum við
ekki alveg safnið en eftir að það kom til okkar maður og kveikti
upp eld (kotið fylltist mjög fljótt af reyk) og við sátum þarna
inni í smá stund þá byrjaði maður að upplifa stemminguna meira.
Þarna voru galdratákn allsstaðar og ég sá eitt sem ég ætla að setja
heima en það er til varnar því að einhver steli af manni
J
Eftir heimsókninna fórum við í sund í
náttúrulegri sundlaug ( og ég fékk að sjálfsögðu bit).
Svo borðuðum við þriggja rétta máltíð
hjá frakka sem sér um hótelið á þessum slóðum. Nokkuð góður matur
hjá honum.
Um kvöldið var svo drukkið enn meira
heldur en kvöldinu áður og mikið spjallað og vakað
frameftir.
Á bakaleiðinni í gær stoppuðum við í
Reykhólum og fórum á Hlunnindasafnið þar. Fyndið hvað er komið
mikið af söfnum út um allt.
Við komum svo heim í gærkvöldi (ég
fór til Kef. Þar sem ég er að vinna alla helgina) og fengum okkur
ís.
Þetta var gott ferðalag og ég þakka
ferðalöngunum skemmtilega ferð. Ég held reyndar að þær lesi ekki
bloggið mitt en skiptir ekki máli.
Næsta ferð er svo örugglega ekki fyrr
en Svíþjóð en það er líka alltaf gaman að bæta fleiri stöðum á
Íslandi á “done” listann J
En þá meiri ferðalanga-Jóhanna